Frjálsíþróttadeild UMFT og frjálsíþróttaráð UMSS halda uppskeruhátíð sína laugardaginn 20. október. Þar verða veitt verðlaun fyrir gott starf og árangur á árinu 2012 og félagar skemmta sér saman.
Matseðill:
- Pastaréttir
- Kjúklingaréttir
- Sykurgljáður Hamborgarhryggur
- Tilheyrandi meðlæti
- Ís og ávextir
- Gosdrykkir
Verð:
- 2900 kr.
- 1200 kr fyrir 11 ára og yngri.
Samkoman verður haldin í Mötuneyti Heimavistar FNV og hefst hún kl. 18.
Tilkynnið þátttöku í síma 455-8060, eða á netföngin eldhus@fnv.is og frjalsar@tindastoll.is