Vel sóttur upplýsingafundur var í vikunni þar sem Auður Daníelsdóttir forstjóri Dranga og Vífill Ingimarsson framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Orkunnar kynntu áætlun Dranga um uppbyggingu á Blönduósi. Verkefnið á sér rúmlega tveggja ára sögu þar sem Reynir Grétarsson og hans fólk í InfoCapital ákváðu að kanna möguleika þess að byggja upp þjónustukjarna með lágvöruverslun á Blönduósi.

Eftir mikla vinnu InfoCapital þar sem Reynir, Böddi, Hákon o.fl. voru búnir að hnoða deigið í töluverðan tíma náðust samningar við Dranga um uppbygginguna. Drangar er nýlegt félag sem heldur utan um starfsemi Orkunnar, Prís, Nettó, Iceland, 10-11, Kjörbúðarinnar, Heimkaups, Krambúðarinnar, Löðurs og Lyfjavals.

Verkefnið snýst um að setja upp þjónustukjarna þar sem fjölorkustöð, lágvöruverlsun, veitingastaður, lúguapótek og bílaþvottastöð verða staðsett. Skipulagsvinna er þegar hafin og hönnun kominn af stað. Áætlað er að framkvæmdir hefjist á næsta ári.

Þetta eru risa fréttir ekki bara fyrir íbúa Húnabyggðar heldur allan landshlutann þar sem engin lágvöruverslun er í landshlutanum. Það var húsfyllir í félagsheimilinu við þetta tækifæri, mikil og góð orka og íbúar greinilega ánægðir með þessar gleðifréttir.

Húnabyggð bindur miklar vonir við að þetta verkefni verði til þess að efla atvinnuuppbyggingu á svæðinu og stuðla að sterkari byggðarfestu svæðisins.