Rétt eftir klukkan 16:00 var tilkynnt um umferðarslys við Blöndubakka á Skagastrandarvegi þar sem þrír bílar lentu í árekstri. Fjórtán manns voru í bílunum, þrír voru fluttir með þyrlu til skoðunar á LSH í Fossvogi, þrír til skoðunar á HSN Blönduósi en þeir hafa verið útskrifaðir, og 8 til frekari rannsókna á SAK á Akureyri.
Skömmu síðar eða klukkan 16.20 varð annað slys við Hvammstanga, þar sem tveir bílar komu við sögu. Þrír einstaklingar voru í bílunum, tveir þeirra voru fluttir með sjúkrabílum til skoðunar á HVE á Akranesi og einn til frekari skoðunar á LSH Fossvogi.
Mjög erfið akstursskilyrði voru á báðum stöðum vegna mikillar hálku og eru tildrög slysanna til rannsóknar.