Hér koma helstu tölfræðimolar frá Brunavörnum Skagafjarðar fyrir árið 2023.
Sjúkraflutningar voru 485, sem er mesti fjöldi sjúkraflutninga á einu ári hjá Brunavörnum Skagafjarðar. Stærsti mánuður ársins var janúar, en í honum voru 55 sjúkraflutningar. Flestir sjúkraflutningar eru frekar tímafrekir, en í tæplega 57% tilfella er farið með sjúkling á Sjúkrahúsið á Akureyri.
Útköll slökkviliðsins voru samtals 28, flest voru þau vegna elds af einhverju tagi í byggingum, eða 6 talsins. Einnig má nefna gróðurelda og vatnsleka sem voru ekki langt undan.
Eldvarnarúttekir, þar sem eldvarnareftirlit fer í fyrirtæki og stofnanir og tekur út brunavarnir, sem og öryggis- og lokaúttektir voru nálægt 200.
Að lokum verður einnig að minnast á þann mikla fjölda fólks sem fékk fræðslu í eldvörnum, að ógleymdum öllum slökkvitækjunum hjá einstaklingum og fyrirtækjum sem voru þjónustuð.