Formaður Drangeyjar – smábátafélags Skagafjarðar, vekur athygli á togveiðum stórra skipa á grunnslóð innanverðs Skagafjarðar, í 1.-3. sjómílna fjarlægð frá landi. Samkvæmt Smábátafélagi Skagafjarðar hefur þetta haft neikvæð áhrif á veiðar hæggengra strandveiðibáta og dregið úr möguleikum þeirra til að nýta svæðið.

Smábátafélag Skagafjarðara hefur óskað eftir því að sveitarstjórn Skagafjarðar taki málið til umfjöllunar og sendi stjórnvöldum mótmæli, með hliðsjón af fyrri aðgerðum þegar svæðið var áður lokað fyrir togveiðum innan ákveðinnar línu.

Byggðarráð Skagafjarðar hefur  samþykkt að hvetja atvinnuvegaráðherra til að taka málið til skoðunar og opna fyrir faglega og gagnsæja umræðu um framtíðarskipulag veiða með dragnót við Íslandsstrendur, með áherslu á verndun vistkerfa og sjálfbæra nýtingu.