Aðsóknartölur fyrir tjaldsvæðin í Skagafirði árið 2024 hafa nú verið gerð opinber. Heildar aðsókn allra tjaldsvæða í Skagafirði var alls 9.650 fyrir árið 2024 en var 11.129 fyrir árið 2023 en það ár var mikil aukning í gestafjölda.

Heildar aðsóknartölur í Skagafirði eftir árum fyrir öll tjaldsvæði er eins og hér segir:

2024 – 9.650
2023 – 11.129
2022 – 7.168
2021 – 5.723
2020 – 4.246
2019 – 7.677