Lið Tindastóls vann góðan 3-1 sigur þegar liðið lék við BÍ/Bolungarvík í Kórnum í Kópavogi, 22. janúar.
Byrjunarlið Tindastóls:
Markmaður: Arnar Magnús
Varnarmenn: Pálmi Valgeirs, Böddi, Fannar Örn og Bjarni Smári
Miðjumenn: Edvard Börkur og bræðurnir þeir Árni, Alli og Atli
Sóknarmenn: Fannar Freyr Gíslason og Andri Gíslason
Varamenn sem komu inná: Atli Sigurðsson, Hilmar, Benni og Stefán Hafsteinsson
Eins og sést á liðsuppstillingunni er Donni að prófa ýmsa leikmenn og í dag var það m.a. okkar fyrrum leikmaður, Fannar Freyr Gíslason sem var með okkur.
Mörk okkar voru öll afar glæsileg en Eddi skoraði með skalla eftir hornspyrnu, Atli skoraði beint úr aukaspyrnu og Hilmar Þór Kárason skoraði eftir hjólhestaspyrnu. Hilmar kættist gríðarlega við þetta mark enda fallegt með eindæmum.