Tindastóll og Höttur/Huginn mættust í Lengjubikarnum í dag á Sauðárkróksvelli. Heimamenn gerðu fyrsta markið á 11. mínútu þegar David Bercedo skoraði. Gestirnir jöfnuð leikinn á 22. mínútu og var staðan jöfn 1-1 í hálfleik.

Þjálfari Hattar/Hugins gerði þrefalda skiptingu í hálfleik og kom meira líf í leik þeirra.  Gestirnir komust yfir á 55. mínútu og voru komnir í 1-2. Stólarnir jöfnuðu á 67. mínútu með marki frá Jónasi Ólafssyni. Nokkrum mínútum síðar fékk Tindastóll vítaspyrnu og úr henni skoraði Benjamín Gunnlaugarson.

Höttur/Huginn jafnði leikinn á 82. mínútu og gerði þjálfari liðsins tvær skiptingar skömmu síðar, og enn færðist kraftur í liðið.

Allt stefndi í 3-3 jafntefli en í uppbótartíma skoraði Danilo Milenkovic sitt annað mark í leiknum og tryggði gestunum 3-4 sigur.