Tindastóll heimsótti Sindra á Hornfjörð á Íslandsmótinu í 3. deild í knattspyrnu karla, leikurinn fór fram 12. júlí. Sindri var stigi frá fallsæti og Tindastóll gat með sigri fært sig nær toppbaráttunni.
Heimamenn fengu vítaspyrnu strax á 3. mínútu og skoraði Ragnar Þór Gunnarsson. Staðan 1-0 fyrir Sindra.
Tindastóll sótti meira eftir þetta og uppskáru mark á 36. mínútu þegar Sverrir Friðriksson skoraði, hans fjórða mark í deildinni í sumar. Svetislav Milosevic skoraði svo annað mark Tindastóls á 44. mínútu og var staðan því 1-2 í hálfleik. Hans fimmta mark í deildinni.
Heimamenn gerði nokkrar skiptingar þegar leið á síðari hálfleik. Sindri jafnaði svo leikinn á 82. mínútu og var Rgnar Þór aftur á ferðinni. Staðan 2-2 og ekki mikið eftir.
Hvorugu liðinu tókst að koma með sigurmarkið og var niðurstaðan 2-2 jafntefli.