Tilnefningum til embættis biskups lauk á hádegi í dag, 12. mars 2024. Á tilnefningarskrá voru 167, af þeim tilnefndu 160 eða 95.81%. Alls voru 48 tilnefndir.

Þeir þrír aðilar sem flestar tilnefningar fengu, sbr. 14. gr. starfsreglna um kosningu biskups Íslands og vígslubiskupa nr. 9/2021-2022, eru eftirtalin:

Sr. Guðrún Karls Helgudóttir (65)

Sr. Guðmundur Karl Brynjarsson (60)

Sr. Elínborg Sturludóttir (52)

Næstir komu, með 10 tilnefningar eða fleiri:

Sr. Ninna Sif Svavarsdóttir (47)

Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir (41)

Sr. Bjarni Karlsson (38)

Sr. Kristján Björnsson (20)

Sr. Sveinn Valgeirsson (13)