Heitavatnslaust verður á svæðinu frá Grófargili að Birkihlíð, Keflavík í Hegranesi og að Hofsstaðaseli frá kl. 8:00 þriðjudaginn 9. september fram eftir degi meðan vinna stendur yfir við endurbætur á dælustöðinni við Grófargil. Það svæði sem verður fyrir þjónustustoppi er innan rammans á loftmyndinni í tilkynningunni.
Notendur eru beðnir um að hafa lokað fyrir alla krana á töppunarstöðum á meðan vinna stendur yfir. Þegar vatn kemur aftur á má búast við að loft geti myndast og þá þarf sennilega að lofttæma ofna á miðstöðvarkerfum.