Ef Tindastóll vinnur leikinn á laugardaginn gegn Þrótti í 1. deild karla í knattspyrnu þá bæta þeir stiga met sitt í 1. deild. Besti árangur í sögu Tindastóls er 6.sæti 1.deildar. Þeim árangri náði liðið árið 1988 þegar liðið fékk 23.stig, 1989 fékk liðið 20.stig og 2000 fékk liðið 20.stig einnig. Þetta er allt í 10 liða deild. Þannig að besti árangur Tindastóls stigalega séð er 23.stig (6.sæti).
Í dag er spiluð 12.liða deild og er Tindastóll nú þegar komnir með 27.stig. Ef liðið sigrar Þrótt á laugardaginn þá nær liðið í 30.stig. Óháð því hvort liðið nái 6.sæti í deildinni, sem er besti árangur í sögu Tindastóls þá með sigri bætir liðið stiga árangur félagsins.
Leikurinn gegn Þrótti byrjar stundvíslega kl:14:00 laugardaginn 22.september og verður spilaður á Valbjarnarvelli í Laugardal.
Allir stuðningsmenn eru hvattir til að mæta og styðja við sitt lið.