Sveitarfélagið Skagafjörður setti nýlega upp þrjár hraðaþrengingar á Sauðárkróki og eru þær staðsettar á Sæmundargötu við Hús Frítímans, við Hólaveg og Hólmagrund.
Markmiðið með uppsetningunni er að draga úr hraða og bæta öryggi allra vegfarenda, sérstaklega í íbúðarhverfum og við svæði þar sem börn og ungmenni eiga leið um.
Sveitarfélagið Skagafjörður mun fylgjast með áhrifum þrenginganna á umferð og reynslu íbúa og ökumanna. Í framhaldi verður skoðað hvort frekari þrengingar verði settar upp.
Þá eru ökumenn hvattir til að sýna aðgát, virða hraðatakmarkanir og taka tillit til annarra vegfarenda.