Þriðjudagsmót í frjálsum íþróttum var haldið á vellinum í Varmahlíð síðasta þriðjudagskvöld. Keppendur fengu frábært veður til að keppa í en það var logn og hlítt. Mótið gekk vel og voru bæði keppendur og mótshaldarar ánægðir með keppnina. Það voru um 40 þátttakendur sem voru skráðir til leiks. Keppnisgreinar voru kringlukast, kúluvarp, spjótkast og yngstu keppendurnir kepptu líka í langstökki.
Stigahæstu keppendur samkvæmt unglingastigatöflu frjálsíþróttasambandsins voru Björgvin Daði(13) með 824 stig fyrir 9,40m í kúluvarpi, Dalmar Snær(11) með 823 stig fyrir 3,48m í langstökki. Gunnar Freyr(13) með 820 stig fyrir 9,33 í kúluvarpi.
Hjá stelpunum var það Elín Helga(12) sem fékk 820 stig fyrir 23,82m í spjótkasti, Vala Rún(13) með 815 stig fyrir 9,48m í kúluvarpi og Guðný Rúna(10) með 707 stig fyrir 3,06 m í langstökk
Texti: UMSS.is