Sveitasæla Landbúnaðar og bændahátíð verður haldin í Skagafirði laugardaginn 30. ágúst frá kl. 10-17. Hátíðin er haldin í Reiðhöllinni Svaðastöðum á Sauðárkróki. Setningin hefst kl.11:00 ávörpum og tónlistaratriði. Hrútadómar hefjast kl. 12:00 og verður verðlaunaafhending kl. 14:30. Kálfasýning hefst kl. 15:00.
Fjölbreytt dagskrá yfir daginn fyrir alla aldurshópa.