Knattspyrnudeild Tindastóls hefur gengið frá ráðningu á nýjum þjálfara fyrir meistaraflokks kvenna. Svanberg Óskarsson er nýr aðalþjálfara liðsins.
Svanberg starfaði síðast hjá KÍ Klaksvík í Færeyjum.
Svanberg segir: “Það er mikill heiður að fá að koma norður og taka við Tindastóli. Hér er öflugt og samheldið samfélag, og ég hlakka mikið til að leggja mitt af mörkum við að efla það góða starf og þann kúltúr sem þegar er til staðar.
Ég er virkilega spenntur fyrir því að vinna með fólkinu í kringum félagið og hjálpa liðinu að taka næstu skref.”
Eftir krefjandi tímabil í deild þeirra Bestu, þar sem Tindastóll féll niður um deild, er ljóst að framundan er mikilvægt uppbyggingarstarf. Markmið Tindastóls er skýrt. Það er að snúa aftur í deild þeirra Bestu og byggja upp sterkt og samkeppnishæft lið til framtíðar.