Staða skólastjóra Tónlistarskóla Skagafjarðar er laus til umsóknar. Óskað er eftir stjórnanda sem hefur metnað og býr yfir hæfni til að skipuleggja krefjandi og framsækið skólastarf í samvinnu við starfsfólk, foreldra og nemendur.  Um fullt starf er að ræða með kennsluskyldu og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Kennsla í hljóðfæraleik fer fram á grunn-, mið- og framhaldsstigi.

 

Tónlistarskóli Skagafjarðar sinnir tónlistarkennslu í öllum Skagafirði; Sauðárkróki, Varmahlíð og Hofsósi. Kennsla fer fram innan grunnskólanna. Markmið skólans er að veita faglega menntun og þjálfun og vinna að eflingu tónlistarlífs. Tónlistarskólinn stuðlar að skapandi umhverfi og opnar tækifæri fyrir nemendur til þess að nýta tónlist með fjölbreyttum hætti í lífi og starfi.