Líkt og undanfarin ár mun Þórarinn Hannesson og fjölskylda standa fyrir söfnun síðustu dagana fyrir jól. Markmiðið er að styðja við bakið á ungum fjölskyldum á Siglufirði þar sem alvarleg veikindi barna eða foreldra eða önnur óvænt áföll hafa sett strik í reikninginn.
Sunnudag 22. desember og mánudaginn 23. desember verður söfnunarbaukur í Ljóðasetrinu fyrir þá sem vilja styðja við þetta málefni. Opið verður frá kl. 13.00 – 16.00 báða dagana. Boðið verður upp á lifandi dagskrá, kaffi og kræsingar.
Fyrir þá sem vilja styrkja verkefnið er bent á reikning í Arion banka á Siglufirði: 0348 – 03 – 403016 Kt: 211264-5359.
Á síðustu fimm árum hefur verið veitt um 650.000 kr. úr þessum sjóði og hafa þær krónur farið á staði þar sem þeirra hefur virkilega verið þörf.