Stjórn björgunarsveitarinnar Skagfirðingasveitar í Skagafirði hefur lagt til að hefðbundinni dagskrá á gamlárskvöld, það er áramótabrennu og flugeldasýningu, verði flýtt og hún haldin kl. 17:00 eða 18:00. Er það rökstutt með því að slíkt fyrirkomulag auðveldi þátttakendum og bæjarbúum Skagafjarðar að njóta kvöldsins með fjölskyldum sínum. Jafnframt kemur fram ánægja með staðsetningu sýningarinnar síðastliðið ár og ósk um að hún verði óbreytt.
Byggðarráð Skagafjarðar hefur samþykkt að áramótabrenna og flugeldasýning á gamlárskvöld í Skagafirði verði flýtt og haldin klukkan 17:00 eða 18:00, en eftirlætur Skagfirðingasveit að velja hvor tímasetningin verður notuð, að teknu tilliti til öryggis- og skipulagsmála.
Jafnframt er samþykkt að halda sýningunni á sömu staðsetningu og árið 2024, enda henti hún vel að öllu leyti.