Við hjá Sjón gleraugnaverslun erum á leiðinni til Sauðárkróks og verðum þar þann þriðjudaginn 16. september milli kl. 10-18. Við verðum staðsett á Kaffi Krók, Aðalgötu 16.
Hægt verður að koma í sjónmælingu og við verðum með yfir 1000 umgjörðir með okkur fyrir þá sem vantar að versla ný gleraugu.
Mikilvægt er að panta tíma í sjónmælingu í gegnum síma 611-8809 eða 511-8809.
Við viljum bjóða öllum bæjarbúum að koma ef einhverja þjónustu þarfnast á gleraugunum.
Það verða að sjálfsögðu sérstök tilboð fyrir viðskiptavini.
Sjáumst þriðjudaginn 16. september.
