Sjómannadagurinn var haldinn hátíðlegur á Hofsósi í gær. Dagskráin hófst með minningarathöfn og messu við minnisvarða látinna sjómanna þar sem sr. Karl V. Matthíasson leiddi athöfnina. Að henni lokinni var nýr björgunarbátur Björgunarsveitarinnar Grettis vígður og fékk hann nafnið Stormur.
Á hafnarsvæðinu var fjölbreytt dagskrá, meðal annars dorgveiðikeppni, kappróður og brautarkeppni.
Þegar dagskrá á hafnarsvæði lauk var boðið upp á hið árlega og vinsæla sjómannadagskaffi í félagsheimilinu Höfðaborg, sem Slysavarnardeildin Harpa sér um.
Við kaffisamsætið fór fram verðlaunaafhending og einnig voru þeir Björn Jónasson og Finnur Sigurbjörnsson, sjómenn og skipstjórar heiðraðir fyrir áratugalangt og farsælt starf í þágu sjómennsku.
Að lokum afhenti Slysavarnardeildin Harpa Björgunarsveitinni Gretti rausnarlegan styrk að upphæð 300.000 krónur.
Myndir með fréttini koma frá Björgunarsveitinni Gretti.