Um klukkan 21:00 í gærkvöldi barst Lögreglunni á Norðurlandi eystra tilkynning um að maður hafi verið stunginn með hnífi í heimahúsi á Kópaskeri. Árásarmaðurinn hafði brotið sér leið inn í húsið en var farinn af vettvangi en ekki var vitað á þeim tíma hver hann var. Lögreglan á Norðurlandi eystra greindi fyrst frá þessu.
Tvennt var á heimilinu þegar þetta gerðist, maður og kona. Konan tilkynnti og var hún óslösuð sjálf en lýsti alvarlegum áverkum á manninum. Á þessum tíma var slæmt veður á Kópaskeri og vegir ófærir að þorpinu. Þegar var óskað eftir útkalli sérsveitar Ríkislögreglustjóra með þyrlu, auk þess sem starfsmenn Vegagerðarinnar voru ræstir út til að opna lögreglunni leið eftir veginum.
Lögreglumenn frá Akureyri og Húsavík fóru á staðinn ásamt rannsóknarlögreglumönnum og komu fyrstu menn á vettvang um kl. 22:50. Læknir sinnti þá þeim slasaða, sem var með takmarkaða meðvitund. Þyrla lenti með sérsveitarmenn á Kópaskeri um kl. 23:40. Sá slasaði var þá þegar fluttur með þyrlunni á Sjúkrahúsið á Akureyri. Hann er þar á gjörgæsludeild og er líðan hans sögð stöðug.
Á meðan á þessu stóð var unnið að því að upplýsa hver árásarmaðurinn væri. Það var svo um kl 01:00 sem meintur gerandi var handtekinn á Kópaskeri en það er karlmaður á fimmtugsaldri. Tvennt annað var handtekið og var fólkið flutt í fangageymslu á Akureyri, þar sem það bíður yfirheyrslu. Ljóst er að málsaðilar voru ekki allsgáðir.
Málavextir í þessu máli eiga enn eftir að skýrast og frekari vettvangsrannsókn að fara fram auk þess sem metið verður hvort farið verður fram á gæsluvarðhald.