Embætti Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra rannsakar skotárás sem varð á Blönduósi síðastliðna nótt.
Sakborningi málsins hefur verið sleppt úr haldi að loknum skýrslutökum, vettvangsrannsókn og öðrum rannsóknaraðgerðum. Í samræmi við stöðu rannsóknarinnar verður ekki gerð krafa um gæsluvarðhald í málinu.