Aðalfundur Leikfélags Sauðárkróks var haldinn í  júní sl. í Leikborg.  Á fundinum urðu formannsskipti þar sem Sigurlaug Dóra Ingimundardóttir lét af störfum eftir langa og farsæla formannssetu. Nýr formaður er Saga Sjöfn Ragnarsdóttir. Sigurlaug hefur verið í stjórn leikfélagsins í 20 ár og 16 ár sem formaður.

Ný stjórn LS er skipuð eftirfarandi:

– Formaður: Saga Sjöfn Ragnarsdóttir
– Varaformaður: Árni Jónsson
– Gjaldkeri: Páll Friðriksson
– Ritari: Ingi Sigþór Gunnarsson
– Meðstjórnandi: Guðbrandur J. Guðbrandsson
– Varastjórn: Hjörtur Gunnarsson, Fanney Rós Konráðsdóttir og Kristey Rut Konráðsdóttir.

Starfsemi Leikfélags Sauðárkrókar sl. leikár var með hefðbundnu sniði þar sem tvö leikrit voru sett á svið í Bifröst, annars vegar Litla hryllingsbúðin, að vori og hins vegar Ávaxtakarfan, að hausti. Þá hefur LS komið að dagskrá hátíðahalda á 17. júní og við tendrun jólaljósa í upphafi aðventu.