Sæluvika, lista- og menningarhátíð í Skagafirði verður haldin vikuna 27. apríl – 3. maí næstkomandi.
Markmiðið með Sæluviku er að bjóða upp á metnaðarfulla og fjölbreytta viðburðadagskrá í Skagafirði þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Leiksýningar, myndlistasýningar, ýmsar listasýningar, tónleikar, matartengd menning, skipulagðar gönguferðir og hestaferðir.
Sveitarfélagið Skagafjörður er byrjað að safna saman viðburðum í viðburðadagskrá Sæluviku og eru allir áhugasamir hvattir til þess að senda inn upplýsingar um viðburði sem til stendur að halda. Viðburðardagskrá Sæluviku mun birtast á heimasíðu Sæluviku, www.saeluvika.is