Rafmagn er komið á öll hús á Siglufirði og í hluta húsa Ólafsfjarðar. Samkvæmt upplýsingum frá RARIK er unnið hörðum höndum að koma rafmagni á og setja upp nauðsynlegt varaafl. Allar vélar Skeiðsfossvirkjunnar eru komnar í lag. Frá þessu er greint á vef Fjallabyggðar.
Heitt vatn er komið í öll hús á Siglufirði en húseigendum er bent á að tappa af lofti sem kann að hafa myndast í ofnakerfi húsanna.
Fært er um Ólafsfjarðarmúla en Siglufjarðarvegur er lokaður.
ATH! Ný aðföng munu berast í verslanir Kjörbúðarinnar í Ólafsfirði og á Siglufirði á föstudag.