Sigurður Arnar Friðriksson hefur verið ráðinn í stöðu forstöðumanns framkvæmda á Veitu- og framkvæmdasviði hjá sveitarfélaginu Skagafirði.
Sigurður Arnar úrskrifaðist árið 2006 sem M.Sc. vélaverkfræðingur á orkusviði frá Danmarks Tekniske Universite en þar áður hafði hann lokið B.Sc. gráðu í iðnaðartæknifræði frá Tækniskóla Íslands árið 2002. Sigurður hefur um tuttugu ára reynslu af verkefnastjórnun og rekstri verklegra framkvæmda.
Hann hefur starfað sem verkefnastjóri og forstöðumaður hjá Gagnaveitu Reykjavíkur og Mílu hf., þar sem hann bar ábyrgð á skipulagningu framkvæmda, framvindu, kostnaðargreiningum og útboðum vegna ljósleiðaravæðingar um allt land.