Kristín Halla Bergsdóttir hefur verið ráðin í starf skólastjóra Tónlistarskóla Skagafjarðar. Kristín Halla er með framhaldspróf í fiðluleik og víóluleik, Suzuki kennararéttindi á fiðlu og víólu, diplómu í viðburðastjórnun og meistaragráðu í menningarstjórnun.
Hún er starfandi staðgengill skólastjóra tónlistarskólans en hefur auk þess hátt í þrjátíu ára reynslu af tónlistarkennslu.
Kristín hefur rekið fyrirtækið Tónadans um árabil, en fyrirtækið býður upp á barna- og ungmennastarf í Skagafirði á sviði dans-, list- og tónlistargreina. Þá var Kristín formaður íslenska Suzukisambandsins um árabil, hljóðfæraleikari Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands í rúman áratug og hefur kennt á námskeiðum um allt land svo fátt eitt sé nefnt.
Heimild: skagafjordur.is