Í tilefni 150 ára afmælis Akureyrarkaupstaðar ákvað bæjarstjórn Akureyrar að veita allt að hálfum milljarði króna í sérstakt umhverfisátak næstu 5 árin. Fjárveitingin er ætluð til nýframkvæmda og stofnbúnaðarkaupa sem tengjast umhverfismálum í sveitarfélaginu öllu (og einstaka deildum þess), s.s. endurgerð og nýframkvæmd leikvalla, gerð göngu- hjóla- og reiðstíga, fegrun og frágang opinna svæða og torga, skógrækt, grisjun, endurgerð og endurplöntun, frágangi og gerð fólkvanga/útivistarsvæða.
Powered by WPeMatico