Háskólinn á Hólum býður upp á nýtt nám í járningum frá og með haustönn 2025. Námið er 30 ECTS einingar, spannar eitt skólaár og fer kennsla fram á ensku. Það er samsett úr lotukennslu á Hólum og fjarnámi og er ætlað nemendum sem þegar hafa mikla reynslu af járningum.
Námið er blanda af verklegri þjálfun ásamt fræðilegri kennslu í samræmi við nýjustu þekkingu á sviði hófhirðu og járninga.
Sérstök áhersla er lögð á sérkenni íslenska hestsins, gangtegundir, hreyfingafræði og fjölbreytta notkun hans og þjálfun með tilliti til járninga, heilbrigðis og velferðar.
Námsmarkmið eru í samræmi við réttindakerfi evrópsku járningamannasamtakanna. Umsjónarmenn námsins verða járningameistararnir Kristján Elvar Gíslason og Aksel Vibe.
