Nýtt listaverk hefur litið dagsins ljós á suðurgafli Miklagarðs á Kirkjutorgi. Það er hópur áhugamanna undir heitinu Skemmtilegri Skagafjörður sem stendur að baki verkinu og fengu þau listamanninn Juan Picture Art til að mála vegginn.

Verkefnið var styrkt af Uppbyggingarsjóði Norðurlands vestra (SSNV), Skagafirði og eigendum Miklagarðs.

Skemmtilegri Skagafjörður eru óháð samtök Skagfirðinga sem eiga það sameiginlegt að vilja fegra umhverfi sitt og aðstoða sveitarfélagið við að gera umhverfið fallegra og skemmtilegra með viðburðum og verkefnum sem þessum.