Reynslan í Skagafirði og Norðurlandi vestra er sú að mjög fáir hafa haft möguleika á að nýta sér hlutdeildarlán sem úrræði til húsnæðiskaupa. Ástæðan er að stærstum hluta sú að í Skagafirði hafa verktakar eða fjárfestar ekki sóst eftir að byggja íbúðir sem standast kröfur um lágmarksstærð og hámarksverð til að fá hlutdeildarlán.
Byggðarráð Skagafjarðar fagnar því þeim áformum að farið verði í endurskoðun á kröfum til slíkra lána. Byggðarráð Skagafjarðar hefur lagt til að horft verði í framtíðinni til mjög sértækra hlutdeildarlána til svæða eins og Norðurlands vestra, þar sem íbúafjölgun hefur verið undir landsmeðaltali og íbúða- og byggingamarkaður íbúða verið jafn óvirkur og raun ber vitni.
