Mennta- og barnamálaráðherra, Guðmundur Ingi Kristjánsson, heimsótti Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki, fimmtudaginn 23. október síðastliðinn ásamt fylgdarliði, en Guðmundur Ingi heimsækir alla framhaldsskóla landsins um þessar mundir.

Ráðherra fékk kynningu á FNV og heimsótti bæði bóknáms- og verknámshús skólans. Nemendur FNV tóku vel á móti Guðmundi Inga og kynntu honum þau verkefni sem þeir takast á við í sínu námi.

Að lokinni kynningu á skólanum var fundur á sal þar sem kynntar voru fyrirhugaðar skipulagsbreytingar.