Frístundastjóri Skagafjarðar hefur kynnt bréf frá nokkrum gestum sundlaugarinnar á Hofsósi sem óska eftir að afgreiðslutími laugarinnar verði lengdur enn frekar en fjárhagáætlun gerir ráð fyrir.
Frístundastjóri Skagafjarðar hefur lagt til að sundlaugin verði opin í sumar, frá 1. maí – 31.ágúst, alla daga frá klukkan 9 – 21 og látið reyna á að rýmri opnun.
Meiri markaðssetning og kynning á lauginni muni skila henni enn meiri tekjum sem réttlæti lengri afgreiðslutíma. Félags-og tómstundanefnd Skagafjarðar hefur samþykkt tillöguna. Ákveðið hefur verið að fara yfir árangur þessa markaðsátaks og áhrif á fjárhagsáætlun að loknu sumri.