Fræðsluráð Dalvíkurbyggðar hefur lagt til að Friðrik Arnarson verði ráðinn í starf skólastjóra Dalvíkurskóla til frambúðar. Friðrik var settur skólastjóri eftir að Gísli Bjarnason tók við starfi sviðsstjóra hjá Dalvíkurbyggð.  Friðrik starfaði áður sem deildarstjóri í unglingadeild skólans.