Kaupfélags Skagfirðinga hefur óskað eftir að fá úthlutaðri lóð við Borgarflöt 33 á Sauðárkróki.  KS vill koma upp á lóðinni sjálfvirkri bílaþvottastöð sem nýtast fyrirtækinu og almenningi.
Fyrirhuguð bílaþvottastöð er 96 m2 bygging með aðkeyrslu og frákeyrslu. Í skoðun er að samnýta plan Olís fyrir inn- og útkeyrslu af lóð.

Skipulagsnefnd Skagafjarðar hefur hafnað umsókn KS um lóðina þar sem hún hefur ekki verið stofnuð né auglýst laus til úthlutunar.

Skagafjörður hefur bent á að lausar iðnaðar- og athafnarlóðir eru inni á kortasjá sveitarfélagsins.