Meistaramót Golfklúbbs Skagafjarðar 2025 fór fram dagana 7.-12. júlí á Hlíðarendavelli á Sauðárkróki. Metþátttaka var í meistaramótinu eða  samtals 103 kylfingar. Í barna og unglingaflokkum voru 29 þátttakendur sem léku í fjórum flokkum en þátttakendur í fullorðinsflokkum voru 74 sem léku í 8 flokkum. Aðstæður á Hlíðarendavelli voru góðar alla leikdagana.

Keppnin var að vanda æsispennandi og voru úrslit í mörgum flokkum ekki að ráðast fyrr en á síðustu holunum á lokadegi. Leika þurfti einn bráðabana til að skera úr um lokaúrslit. Lokahóf fullorðinsflokka fór fram í Ljósheimum í Skagafirði.

 

Klúbbmeistarar GSS 2025 eru Jóhann Örn Bjarkason og Anna Karen Hjartardóttir en þau áttu bæði titil að verja. Jóhann fór á 317 höggum, þremur færra en Hákon Ingi. Jóhann Örn er klúbbmeistari í áttunda sinn en hann hefur verið klúbbmeistari árin 2002, 2003, 2004, 2005, 2010, 2011 og 2024.  Anna Karen er klúbbmeistari í sjötta sinn í röð en hún varð fyrst klúbbmeistari árið 2020 og hefur náð að verja titilinn síðan.  Anna Karen fór á 324 höggum, en í 2. sæti var Dagbjört Einarsdóttir á 340 höggum.

Úrslit meistaramóts GSS 2025 í flokkum fullorðinna eru eftirfarandi:

 

Meistaraflokkur karla – 72 holu höggleikur án forgjafar (hvítir teigar)

  1. Jóhann Örn Bjarkason, 317 högg
  2. Hákon Ingi Rafnsson, 320 högg
  3. Ingvi Þór Óskarsson, 336 högg

 

Meistaraflokkur kvenna – 72 holu höggleikur án forgjafar (bláir teigar)

  1. Anna Karen Hjartardóttir, 324 högg
  2. Dagbjört Sísí Einarsdóttir, 340 högg
  3. Gígja Rós Bjarnadóttir, 349 högg

 

Fyrsti flokkur karla – 72 holu höggleikur án forgjafar (gulir teigar)

  1. Brynjar Morgan Brynjarsson, 345 högg
  2. Friðjón Bjarnason, 347 högg
  3. Þórður Ingi Pálmarsson, 348 högg

 

Fyrsti flokkur kvenna – 72 holu höggleikur án forgjafar (rauðir teigar)

  1. Sylvía Dögg Gunnarsdóttir, 401 högg
  2. Margrét Helga Hallsdóttir, 403 högg
  3. Aldís Hilmarsdóttir, 435 högg

 

Annar flokkur karla – 54 holu höggleikur án forgjafar (gulir teigar)

  1. Unnar Bjarki Egilsson, 283 högg
  2. Axel Arnarson, 300 högg
  3. Reynir Bjarkan Róbertsson, 302 högg

 

Annar flokkur kvenna – 54 holu höggleikur án forgjafar (rauðir teigar)

  1. Helga Jónína Guðmundsdóttir, 322 högg (að loknum bráðabana)
  2. Hanna Dóra Björnsdóttir, 322 högg
  3. Hafdís Skarphéðinsdóttir, 330 högg

 

Öldungaflokkur – 27 holu höggleikur með forgjöf

  1. Herdís Ásu Sæmundardóttir, 113 högg nettó
  2. Guðrún Björg Guðmundsdóttir, 119 högg nettó
  3. Guðmundur Helgi Kristjánsson, 120 högg nettó

 

Háforgjafaflokkur – 18 holu punktakeppni með forgjöf

  1. Birkir Fannar Gunnlaugsson, 39 punktar
  2. Sigrún Ólafsdóttir, 36 punktar
  3. Hjörtur Ragnarsson, 36 punktar

Heimild og ljósmynd: gss.is