Framhaldsaðalfundur knattspyrnudeildar Tindastóls fór fram 25. júní síðastliðinn. Efni fundarins var aðeins eitt, að kjósa formann og stjórn fyrir knattspyrnudeildina.
Jóhann Daði Gíslason gaf kost á sér til formanns knattspyrnudeildar Tindastóls og hlaut einróma kosningu. Magnús Helgason gaf áfram kost á sér til gjaldkera og Guðný Axelsdóttir sem ritari. Þau munu svo finna með sér fólk til starfa í stjórninni.
Jóhann Daði er fæddur árið 2000 og er leikmaður meistaraflokks karla hjá Tindstól frá árinu 2017, og hefur komið að styrkjaöflun fyrir knattspyrnudeildina. Þá lék hann í yngri flokkum félagsins.
Hann á að baki nám í viðburðastjórnun og hefur nokkra reynslu sem slíkur.