Afhending lykla að félagsheimili Rípurhrepps í Hegranesi fór fram með formlegum hætti þegar félagið Íbúasamtök og hollvinir Hegraness undirritaði tíu ára leigusamning um húsnæðið og tók formlega við lyklum.

Þessi tímamót marka kaflaskil í sögu húsnæðisins, sem var reist á sjöunda áratug síðustu aldar og hefur gegnt mikilvægu hlutverki í samfélaginu. Félagsheimilið mun áfram vera vettvangur samveru, menningar og félagslífs, þar sem íbúar geta komið saman til að efla tengsl og halda upp á fjölbreytta viðburði.