Boðað er til íbúafundar í félagsheimilinu Höfðaborg miðvikudaginn 3. apríl kl. 17:30 til kynningar á verkefninu verndarsvæði í byggð á Hofsósi. Sveitarfélagið Skagafjörður hlaut styrk frá Minjastofnun Íslands árið 2015 til að vinna tillögur að verndarsvæði í byggð á Sauðárkróki og Hofsósi.
Verkefnið skiptist í húsakönnun, fornleifaskráningu og greinargerð þar sem metið er varðveislugildi og gerðir skilmálar um vernd og uppbyggingu innan svæðisins.
Verkefnið byggist á lögum sem sett voru árið 2015 um verndarsvæði í byggð og er tilgangur þeirra að stuðla að verndun einstakra bæjarhluta í kaupstöðum og bæjum landsins með það að markmiði að vernda menningarsögulegt og listrænt gildi einstakra bæjarhluta um ókomna tíð.
Á fundinum verður kynnt staða verkefnisins, varðveislumat, verndarskilmálar og möguleikar til uppbyggingar.
Íbúar og aðrir áhugasamir eru hvattir til að mæta.