Hraðakstur í íbúðagötum er vandamál í þéttbýlisstöðum Skagafjarðar. Íbúar hafa áhyggjur af gangandi börnum og ferðum gangandi vegfarenda. Taka þarf á rótum vandans sem er að hluta til hraðakstur innan íbúahverfa og að því er oft virðist þá oft hraði umfram þann hraða sem leyfður er í viðkomandi götu.
Íbúar eru hvattir til að fara gætilega og virða þær hraðatakmarkanir sem eru í gildi í Skagafirði. Lögregluyfirvöld er hvött til að gera verulegt átak í hraðakstri innan þéttbýlismarka Skagafjarðar og tryggja þannig að gildandi reglum sé fylgt.
Sveitarfélagið Skagafjörður ætlar að hefja kortlagningu á helstu hættusvæðum, m.t.t. uppsetningu hraðahindrana og hugsanlegra hraðalækkana, í samvinnu við lögreglu.