Fjögur smit greindust á Sauðárkróki í gær. Smitrakning stendur yfir og talsverður fjöldi er kominn í sóttkví og úrvinnslusóttkví.

Rúmlega 150 sýni voru tekin í dag. Vonast er til að svör berist í kvöld en það gæti dregist til morguns.

Mikilvægt er að allir gæti að persónulegum sóttvörnum, handþvotti og sprittun, grímunotkun og virði fjarlægðarmörk og reglur um hópamyndanir. Fólk er beðið um að fara sérstaklega varlega á næstunni.

Ef fólk hefur einkenni um veikindi er það hvatt til að vera heima og fara í sýnatöku.

Hjúkrunar- og sjúkradeildum HSN á Sauðárkróki hefur verið lokað fyrir heimsóknir.

Frá þessu er greint á vef HSN.is.