Vegna kvikmyndatöku fyrir sjónvarpsþættina Bless bless Blesi mun hestastóð, alls um sjö hestar hlaupa víðsvegar um tiltekin svæði á Hofsósi mánudaginn 11. ágúst næstkomandi.
Hestafólk mun fylgja stóðinu. Tökurnar munu fara fram í stuttum lotum og munu hestarnir því einungis hlaupa stuttar vegalengdir í senn. Íbúar og gestir eru beðnir um að sýna aðgát.
Hugsanlegir staðir sem farið verður um eru meðal annars:
- Hvosin (grænt hús á hæðinni)
- Brúin við bryggjuna
- Vegurinn hjá kjörbúðinni
- Nokkrir aðrir staðir víðsvegar um Hofsós