Varnar- og miðjumaðurinn Gunnar Már Magnússon hefur yfirgefið Dalvík/Reyni í 2.deild karla í knattspyrnu og hefur skipt yfir í Hvíta Riddarann sem leikur í 4. deildinni. Gunnar Már hefur leikið 216 leiki fyrir Dalvík, Leiftur/Dalvík og Dalvík/Reyni frá árinu 2003. Undanfarin tvö tímabil hefur hann mikið verið varamaður hjá liðinu en hann hefur leikið 12 leiki í deild og bikar fyrir Dalvík/Reyni í ár.

Hans besta tímabil var líklega árið 2011 þegar hann lék 20 leiki og skoraði 10 mörk þegar liðið sem var í 2. deildinni það árið.

Hann lék áður með Hvíta Riddaranum árið 2016-2018 og hefur leikið 40 leiki fyrir félagið.