Jafnaðarmenn í Fjallabyggð og Sjálfstæðisflokkurinn í Fjallabyggð hafa stofnað til meirihlutasamstarfs í Fjallabyggð. Málefnasamningur milli framboðanna tveggja var samþykktur af Jafnaðarmannafélagi Fjallabyggðar og fulltrúaráði Sjálfstæðisflokksins í Fjallabyggð í kvöld. Steinunn María Sveinsdóttir oddviti Jafnaðarmanna verður áfram formaður bæjarráðs og Helga Helgadóttir bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins verður forseti bæjarstjórnar. Gunnar Ingi Birgisson verður áfram bæjarstjóri Fjallabyggðar.