Mánudaginn 29. april 2019 verður fíkniefnafræðsla í menningarhúsinu Tjarnarborg í Ólafsfirði. Fræðslufundurinn hefst kl. 19:30.
Fræðslan er í samvinnu við Lögregluna á Norðurlandi eystra, Grunnskóla Fjallabyggðar og Menntaskólann á Tröllaskaga. Tveir fulltrúar fíkniefnateymis lögreglunnar koma á fundinn og fræða fundarmenn um ýmislegt varðandi fíkniefni og fíkniefnaneyslu svo sem aðgengi, einkenni og ýmislegt annað. Haustið 2016 var haldinn vel heppnaður fundur í Tjarnarborg með sömu aðilum og nú verður fræðslan endurtekin.
Fundurinn er öllum opinn og eru foreldrar grunn- og framhaldsskólanemenda sérstakalega hvattir til að koma. Fulltúar sveitarstjórnar, heilbrigðisstofnunar, félagsþjónustu og hverjir þeir sem tilbúnir eru til að leggja hönd á plóginn eru hvattir til að koma á fundinn.