Fornverkaskólinn í Skagafirði hefur hlotið Evrópsku minjaverndarverðlaunin / Europa Nostra Awards 2026, sem
eru virtustu minjaverndarverðlaun Evrópu. Verðlaunin eru veitt af framkvæmdastjórn Evrópusambandsins og
Europa Nostra með stuðningi úr Menningaráætlun ESB. Að þessu sinni hlutu 30 verkefni frá 18 löndum
viðurkenningu, en alls barst 261 umsókn frá 40 löndum.
Fornverkaskólinn, sem starfræktur er af Byggðasafni Skagfirðinga, var stofnaður árið 2006 til að varðveita
hefðbundnar íslenskar byggingaraðferðir, einkum torfhúsagerð. Með verklegri kennslu, rannsóknum og
endurbyggingu friðaðra húsa tryggir skólinn að þessi sjaldgæfa handverkshefð haldist lifandi og skili sér til komandi
kynslóða.
„Við erum gríðarlega stolt af þessari viðurkenningu á starfi síðustu tveggja áratuga. Við vonum að hún varpi ljósi á
torfhúsaarfinn, sem er í hættu þar sem sífellt færri kunna handverkið,“ segir Berglind Þorsteinsdóttir, safnstjóri
Byggðasafns Skagfirðinga.
Frá árinu 2007 hefur skólinn haldið um 50 námskeið með þátttöku um 500 nemenda, innlendra og erlendra.
Kennsla hefur að stórum hluta farið fram á Tyrfingsstöðum í Skagafirði, þar sem söguleg hús hafa verið endurbyggð
og nýtt sem lifandi kennslustofa.
Í umsögn dómnefndar segir: „Verkefnið tekst á við hnignun þekkingar á hefðbundnu byggingarhandverki í Evrópu
með því að miðla því áfram á lifandi og áþreifanlegan hátt. Það byggir á öflugu kennslulíkani um flutning þekkingar
á milli kynslóða sem tryggir bæði varðveislu húsanna sjálfra og þeirrar þekkingar sem þarf til að halda þeim við.
Verkefnið stendur á traustum grunni vandaðs handverks og nýtur stuðnings af alþjóðlegu og fræðilegu samstarfi,
og er góð fyrirmynd fyrir varðveislu torfhúsaarfsins.“
„Áfram Ísland!“
Verðlaunahafar verða heiðraðir við hátíðlega athöfn í Nikósíu á Kýpur þann 28. maí. Almenningur getur jafnframt
kosið sitt uppáhaldsverkefni með netkosningu í „Public Choice Award“ en sigurvegari hennar fær 10.000 evrur í
verðlaun. „Við getum kannski ekki kosið Ísland í Eurovision í ár, en í þetta skiptið getum við heldur betur kosið
Ísland og torfhúsaarfinn okkar í Evrópsku minjaverndarverðlaununum – áfram Ísland!“ segir Berglind og bendir á
að hægt sé að greiða atkvæði til 12. maí á vefsíðu Europa Nostra.
Þetta er í annað sinn sem íslenskt verkefni hlýtur verðlaunin frá því að þau voru fyrst veitt árið 2002. Fyrra verkefnið
var Franski spítalinn á Fáskrúðsfirði, sem hlaut verðlaunin árið 2016.
Verðlaunahafar Evrópsku minjaverndarverðlaunanna European Heritage Awards / Europa
Nostra Awards 2026:
Varðveisla og nýstárleg endurnýting (e. Category Conservation & Adaptive Reuse)
Hungarian State Opera House, Budapest, HUNGARY
Polirone Monastic Complex, San Benedetto Po, ITALY
Multifunctional Urban District of Bologna – DumBO, ITALY
Garden of Nikolai Astrup – Astruptunet, Vassenden, NORWAY
Bánffy Castle, Răscruci, ROMANIA
Dome of the Church of Escuelas Pias of Valencia, SPAIN
Salinas de La Concepción, Menorca, SPAIN
Rannsóknir (e. Category Research)
The Cypriot Fiddler, CYPRUS
National Historical Archive of Italian Restorers – ASRI, ITALY
FENIX Project, Seville, SPAIN
Menntun, þjálfun og færni (e. Category Education, Training & Skills)
Heritage Craft School, ICELAND
Improving the Energy Performance of Heritage Properties in State Care Initiative, Dublin, IRELAND
International Summer School on Historic Masonry Structures – HIMASS, ITALY / SPAIN
Cita Rīga’s Initiative ‘Co-creating Urban Heritage with Children’, LATVIA
Safeguarding the Dobrota Lace Tradition – Pacijenca Project, Kotor, MONTENEGRO
School of Renovation, Skofja Loka, SLOVENIA
Samfélagsþátttaka og vitundarvakning
(e. Category Citizens’ Engagement & Awareness-raising)
Croatian Coral Center Zlarin, CROATIA
Sector 2: Nicosia – The Green Line Project, CYPRUS
Gardens of Peace Project, FRANCE
14 Henrietta Street – Social History Museum of Dublin Life, IRELAND
Intorno a Minerva Project, Breno, Brescia, ITALY
Gothic Route Initiative, SLOVAKIA
Preserving the Art and Memory of Polina Raiko, Kherson, UKRAINE
Frumkvöðlar á sviði menningararfs
(e. Category Heritage Champions)
Din l-Art Ħelwa – The National Trust for Malta, Valletta, MALTA
Factum Foundation for Digital Technology in Preservation, Madrid, SPAIN
Museum Open for Renovation NGO, Kyiv, UKRAINE
Maryna Hrytsenko †, Chernihiv, UKRAINE (Posthumous Award)
Þrír af verðlaunahöfum ársins koma frá ríkjum utan Evrópusambandsins sem taka ekki þátt í Menningaráætlun ESB
(Creative Europe), nánar tiltekið frá Bretlandi og Tyrklandi. Þessir vinningshafar hljóta Europa Nostra-verðlaunin – sem
eru ekki fjármögnuð af ESB – sem endurspeglar skuldbindingu samtakanna til að viðurkenna framúrskarandi árangur á
sviði menningararfs í öllum aðildarríkjum Evrópuráðsins.
Elizabeth Tower – Big Ben, London, UNITED KINGDOM (Conservation & Adaptive Reuse)
Rochdale Town Hall, UNITED KINGDOM (Conservation & Adaptive Reuse)
Assessing Earthquake Damage to Cultural Heritage Sites, TÜRKIYE (Citizens’ Engagement & Awareness-Raising)
Framúrskarandi árangur í þágu evrópsks menningararfs sýndur í verki frá 2002
Evrópuverðlaun fyrir menningararf / Europa Nostra-verðlaunin voru sett á laggirnar af framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins árið 2002 og hafa verið í umsjón Europa Nostra síðan þá. Í 24 ár hafa verðlaunin verið lykiltæki til
að viðurkenna og kynna margþætt gildi menningararfs fyrir menningu, samfélag, efnahag og umhverfi Evrópu.
Verðlaunin njóta stuðnings úr Menningaráætlun Evrópusambandsins (Creative Europe) og hafa vakið athygli á
framúrskarandi starfi og fyrirmyndarlausnum á sviði menningararfs í Evrópu. Þau hafa stuðlað að þverþjóðlegum
þekkingarskiptum og tengt hagsmunaaðila á sviði menningararfs í víðfeðmari tengslanet. Verðlaunin hafa fært
vinningshöfunum margvíslegan ávinning, svo sem aukna kynningu innanlands og erlendis, viðbótarfjármögnun og
fjölgun gesta. Þar að auki hafa verðlaunin ýtt undir aukna meðvitund og umhyggju meðal evrópskra borgara fyrir okkar
sameiginlega menningararfi.