Lögreglan á Norðurlandi vestra í samstarfi við Netvís býður foreldrum og forráðamönnum á fræðslukynningar um netöryggi barna og ungmenna, áhrif netöfgasamfélaga og hvernig hægt er að þekkja hættumerki í netheimum. Kynningin verður haldin í Árskóla á Sauðárkróki þriðjudaginn 19. maí kl. 16:00.
Fyrirlesarar eru Símon Geir og Haukur sem hafa mikla reynslu á þessu sviði og hafa átt samtöl og unnið með fjölda einstaklinga á öllum aldri um áskoranir og hættur sem leynast á netinu.
Foreldrar fá hagnýta fræðslu, ráð og innsýn í þann veruleika sem börn og ungmenni mæta daglega á netinu.
Við hvetjum alla foreldra og forráðamenn til að mæta og kynna sér þetta mikilvæga málefni