Húlladúllan stendur fyrir verkefninu “Fjölskyldusirkushelgar í Eyþingi”. Verkefnið er unnið undir formerkjum heilsueflandi nálgunnar. Dagskráin er sérstaklega sniðin að því að fjölskyldan og samfélagið geti öll tekið þátt og notið helgarinnar saman, burtséð frá aldri og stærð. Húlladúllan mætir í Fjallabyggð, (4. -5. maí), í Skútustaðahrepp (11. -12. maí) og í Eyjafjarðarsveit (25. -26. maí).
Fjölskyldusirkushelgin felur í sér tveggja daga kennslu þar sem þátttakendur fá að prófa hinar ýmsu sirkuslistir og og sirkusáhöld undir leiðsögn tveggja frábærra kennara. Húlladúllan og sirkuslistakonan Unnur Máney leiða kennsluna og með henni er Erna Héðins, kennari og markþjálfi. Kennt er í sex klukkutíma laugardag og sunnudag með klukkutíma hádegishléi hvorn dag.
Markmið kennslunnar er að þátttakendur geti eftir að námskeiðinu lýkur nýtt sér það sem þau lærðu til að leika og njóta. Þátttakendur fá kennslugögn sem innihalda minnislista yfir þau trix sem kennd voru, leiðbeiningar um það hvaða áhöld megi nota í stað sérhæfðra sirkusáhalda og leiðbeiningar um það hvar á vefnum sé að finna góð kennslumyndbönd fyrir þau sem vilja halda áfram að bæta við þá kunnáttu sem þau öðluðust um helgina.
Hver smiðja getur tekið á móti 50 þátttakendum frá grunnskólaaldri og upp úr. Þátttökukostnaði er haldið í lágmarki en aðeins er rukkað 2000 króna skráningargjald fyrir hvern þátttakanda. Þetta er mögulegt þökk sé stuðningi Norðurorku og Uppbyggingarsjóðs Norðurlands eystra ásamt stuðningi þeirra sveitarfélaga sem taka þátt, í formi afnota af aðstöðu.
Skráning fer fram á vefsíðu Húlladúllunnar www.hulladullan.is og þar er að finna allar frekari upplýsingar.
HVAÐ ER Í BOÐI Á
FJÖLSKYLDUSIRKUSHELGUM
HÚLLADÚLLUNNAR?
Skemmtilegir leikir
Jafnvægisfjaðrir
Kínverskir snúningsdiskar
Kasthringir
Djöggl með mismunandi áhöldum
Loftfimleikar
Veltibretti
Trúðalæti
Skemmtileg líkamsrækt
Sirkusfimleikar
Húllahopp
Hlátur
Blómaprik
Gleði
