Stjórnendur Fiskidagsins Mikla hafa óskað eftir auknu fjárframlagi frá Dalvíkurbyggð árið 2020 vegna 20 ára afmælis Fiskidagsins mikla. Vegna þessara tímamóta verður aukinn kostnaður af hátíðinni. Fiskidagsnefndin mun halda vinnuhelgi í septembermánuði þar sem afmælishátíðin árið 2020 verður mótuð.
Þá hafa stjórnendur Fiskidagsins mikla bent á að auka þurfi fjármagn til tjaldsvæðanna í Dalvíkurbyggð og koma með nýtt skipulag.